Skip to the page

Lögfræðingur á sviði skattaréttar

DeloitteSmartRecruitersKópavogur, Kópavogsbær, IS
Posted 23 OctFound 24 OctSeen 5 hours ago

Fit

The keywords the posting names, against what your resume says.

Add your resume to see which of its keywords you already have, and get a resume tailored to this posting. 10 a month, free.

The Posting

Deloitte Legal er framsækin og alþjóðleg lögmannsstofa sem þjónustar fjölbreyttan hóp fyrirtækja í margvíslegum atvinnugreinum á öllum helstu sviðum fyrirtækjalögfræði. Deloitte Legal er jafnframt samstarfsaðili Deloitte á heimsvísu sem samanstendur af 490.000 sérfræðingum og er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar og tengdrar þjónustu.

Deloitte Legal leitar að áhugasömum og metnaðarfullum lögfræðingi í öflugt teymi félagsins, sem samanstendur af hópi lögmanna, lögfræðinga og annarra sérfræðinga. Hjá Deloitte á heimsvísu starfa að auki yfir 2.500 lögfræðingar, sem saman vinna að því að veita framúrskarandi þjónustu.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi til að starfa við skattaráðgjöf og tengd mál

Helstu verkefni lögfræðings:

  • Úrvinnsla lagalegra álitaefna og ráðgjöf á sviði skattaréttar.
  • Samskipti við stjórnvöld.
  • Skattalegar áreiðanleikakannanir.
  • Skjalagerð.
  • Samvinna með öðrum ráðgjafateymum, hérlendis sem og erlendis.
  • Önnur skatta- og lögfræðiráðgjöf við stór sem smá fyrirtæki.

Menntunar- og hæfiskröfur

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
  • 3-5 ára reynsla af lögfræðistörfum á sviði skattaréttar .
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði og geta til að tjá sig, í máli og riti.

Starfsþróun þín

  • Við upphaf starfs færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið („Buddy-kerfi“).
  • Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu sem og „People Leader“ sem aðstoða þig við að þróa þig áfram í starfi.
  • Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum.
  • Við styðjum við vöxt þinn með símenntunartækifærum.

Að auki bjóðum við upp á:

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
  • Góðan aðbúnað í höfuðstöðvum okkar á Dalvegi
  • Styrki til nýbakaðra foreldra
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi

Við hlökkum til að fá umsóknina þína.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Haraldur I. Birgisson (habirgisson@deloitte.is) framkvæmdastjóri og meðeigandi hjá Deloitte Legal. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is, til og með 9. nóvember nk.

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.

Facts

Source
SmartRecruiters
External id
744000157507008
Location
Kópavogur, Iceland
Remote
On-site, from the posting
Employment
Full time
Posted
23 Oct 2026, 14:59
First seen
24 Oct 2026, 01:21
Last seen
1 Nov 2026, 02:03
Status
Not yet added
Posting id
1dfa365c-e85b-5eb1-93e9-7b554b458718